Wednesday, July 30, 2008

Birthday Party

Yup, it's true...Harpa og Vignir eru að koma á klakann 13. ágúst!

Eins og vinir og vandamenn muna eru afmælispartí Hörpu klárlega kúl, og þess vegna verður haldið eitt slíkt á föstudeginum 15. ágúst á Hverfisgötu 105. Þú kæri lesandi ert hér með boðinn, nema þú þekkir okkur ekki neitt (sem verður að teljast afar ólíklegt.)

Tilefni partísins verður einnig Ugandaferð okkar Vignis í september, en þar munum við eyða næsta árinu að vinna hjálparstarf.

Afmælisgestir eru beðnir um að vera mjög kátir og afar ölvaðir. Tollurinn verður drukkinn en hafa ber í huga að hann er ekki óþrjótandi.

Og rúsínan í pusluendann! Þið sem hafið endalaust kvartað yfir því að það sé ómögulegt að gefa mér afmælisgjöf (Hulda aðallega:)) þurfið ekki að örvænta!... því ég tek ekki við neinum afmælisgjöfum að þessu sinni. Ekki einu sinni áfengi!!!

Þess í stað bið ég ykkur, ágætu vinir og vandamenn, að leggja inn á söfnunarreikning okkar Vignis, fyrir sjálfboðastarfi okkar í Uganda.

Reikningsheiti: Harpa Fönn Sigurjónsdóttir/Uganda.
Reikningsnúmer: 0567 – 14 - 602601,
kt. 170881-4519

Hvert lítið framlag er okkur mikils virði.

Takktakk

V and H

3 comments:

Anonymous said...

ohh missti af afmælispartýinu :( Sendi ekki einu sinni afmæliskveðju, sorry snúllan mín!! Ég skálaði þér samt í ouzo, þar sem ég var stödd á lítilli grískri eyju.
milljón knús og kossar !!

ps hvenær farið þið til Uganda? Ég verð á Íslandi 2.-4.sept og 18.-21.sept. Og ég VEEEEEERÐ að sjá þig, annars dey ég örugglega bara.

Vignir and Harpa said...

VEIVEIVEI!!!

Ertu að koma á klakann??? Ég verð reydnar fyrir norðan 2-4 september en verð komin aftur suður vel áður en ég fer til Uganda, sem er 22. september... hlakka til að sjá þig snúll! Ég er með íslenska númerið mitt;)

sakni sakni sakn,
Harpa

Vignir and Harpa said...

VEIVEIVEI!!!

Ertu að koma á klakann??? Ég verð reydnar fyrir norðan 2-4 september en verð komin aftur suður vel áður en ég fer til Uganda, sem er 22. september... hlakka til að sjá þig snúll! Ég er með íslenska númerið mitt;)

sakni sakni sakn,
Harpa