Friday, March 28, 2008

Ferðasaga 2. hluti - Búdapest

Þarna erum við komin á brautarstöðina í Búdapest. Hörpu þótti stöðin afskaplega "krúttleg," enda fremur fábrotin samgöngumiðstöð.

Eftir afar slælegar leiðbeiningar frá heimamönnum í gegnum almenningssamgöngukerfið komumst við loks upp á hostelið okkar. Byggingarstíllinn er nokkuð magnaður í þessum hluta heims...

...jafnvel þó herbergið hafi ekki verið mikið til að tala um. Þarna er ég að gæða mér á dásamlegu súkkulaði brezel frá Vín.


Hörpu þótti lyftan ekki sérlega traustvekjandi.


Þarna erum við búin að mastera almenningssamgöngurnar og komin á Castle Hill í Buda hverfinu. Þessir tveir félagar léku fyrir okkur þjóðlög sín og var hin mesta skemmtun af.


Þetta ku vera Stefán I.


Útsýnið yfir Dónánna og borgina ofan af Buda hæðunum er stórfenglegt eins og sjá má í Panorama.

Harps: yesyes...Meira útsýni... Vix var orðinn frekar mikið ofvirkur á myndavélina og vildi taka myndir af ÖLLU!

kastalaveggur umkringdi allan gamla bæinn í Búdapest og eins og sjá má var veggurinn íburðarmikill og þjónaði vel því hlutverki að halda almúganum í burtu, enda tók það okkur hálftíma að finna leiðina í gegnum vegginn! Þetta er Fisherman's Bastion.

Vix: Þessa fínu mynd tók Skoppa, hún er svo góður ljósmyndari.

Vix, ofvirkur á myndavélina... aftur:)
(Vix: enda útsýnið stórkostlegt)

og myndefnið og fyrirsætan þá ekki síðri



Þinghúsið sést í bakgrunni, þegar horft er framhjá aðalmyndefninu, sem erum klárlega VIÐ!


Þeir eru eitthvað latir við að þrífa upp gamalt drasl þarna í A-Evrópu. Fornleifauppgröftur



Vix enn einu sinni að monta sig af Panorama myndagerðinni í símanum sínum. (Vix: aftur, enda er myndefnið ekki af verri endanum.)


Vix fransmaður....


Þetta er hinn glæsilegi Mattíhasar brunnur, en þar má sjá Konung Matthias Corvinus fara fyrir veiði með hundum og fleiru. Að fótum hans liggur stærðar hjörtur.

fallegt fallegt

Þessi stytta er frá 1901 og heitir "Tamningamaðurinn frá Hortobágy."


Loksins, loksins, fundum vid hliðið!


Chain bridge yfir Dónánna er glæsileg og þar mætast fortíðin og samtíminn.

Széchenyi lánchíd er elsta brúin í Búdapest, frá árinu 1849.



Dónáinn er 2860 kílómetrar á lengd.


Styttan af Queen Elizabeth, það voru einhverjir smáborgarar sem vildu skíra hverfið sitt eftir einhverri kerlu í Englandi.

Saint Gellért minnismerkið. Heilagur Gellért var biskup á 11. öld, en í uppreisn heiðingjanna árið 1046 ákváðu guðlausir menn að setja hann ofan í tunnu og velta honum niður alla þessa brekkur. Biskupinn lifði það ekki af og var því hæðin skírð eftir honum og þetta minnismerki reist. Ofan á þessari hæð er svo ægilegt virki, en Skopps nennti ekki að lappa upp og reyndi frekar að ljúga því að mér að þetta minnismerki væri "Citadel."


Vajdahunyad kastalinn í Várósliget. Hann var byggður á árunum 1896 til 1908. Í fyrstu mun hann hafa verið búinn til úr pappa og tré fyrir heimssýninguna árið 1896, en endurbyggður úr steini eftir það.

Við, Við sama kastala (Harps heimtaði mynd af okkur, ekki BARA af byggingum!)



Heroes' Square. Þetta torg er til minnis um leiðtoga þeirra sjö ættbálka sem stofnuðu Ungverjaland á tíundu öld. Ásamt öðrum fyrirmennum úr ungverskri sögu. Bygging þess hófst á þúsund ára afmæli þjóðarinnar árið 1896, en var ekki lokið fyrr en rúmum þrjátíu árum síðar.




(nú bannaði Harps Vixa að taka fleiri myndir af byggingum, enda var Vixi farinn að líkjast myndaglöðum þjóðverja of mikið... NEI TAKK! fyrir Hörps)


Í staðinn tók Harps 'venjulega' mynd af Vixa sínum...


Sánkti Stephens basilica. Hún er skírð eftir fyrsta konungi Ungverjalands, er hét Stefán I (ca. 975-1038.) Þarna inni geyma þeir víst hendina af honum. Ásamt þinghúsinu mun þetta vera hæsta byggingin í Búdapest, einhverjir 96 metrar, enda voru þeir víst 54 ár að byggja þetta ferlíki. Ég náði henni ekki á eina mynd...



sama sama... (Vix greinilega EKKI að hlýða Hörpu!)

Eftir að Harpa hafði rifið símann af Vixa og sett hann í töskuna hjá sér, héldum við á indverskan stað, sem var alveg frábær! Svo hélt Harpa að hún hefði fundið stað drauma sinna í formi Fondu-pöbbs, en vongrigðin voru mikil þar sem 'súkkulaði' fondue-ið bragðaðist sem kakósúpa með ávöxtum!
Eftir það héldum við dauðþreytt í háttinn, enda planið að vakna snemma og taka lestina til Bratislava!

6 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ gaman að fylgjast með ykkur ótrúlega flottar myndir úr símanum enda er myndefnið flott (bæði þið og byggingarnar
Kveðja mamma (V)

Anonymous said...


Flottar myndir - við látum okkur dreyma um svona ferðalag :-)
Bíðum spennt eftir næstu myndaseríu
Ástarkveðja frá Trölló

Unknown said...

Vá hvað það er gaman að skoða allar þessar myndir! Takk fyrir mig!

Hlakka til að sjá ykkur í sumar ;)

Anonymous said...

öööööööööfuuuund

Anonymous said...

Vignir minn, þetta eru glæsilegar byggingar en ég verð að segja að fólkið á myndunum er jafnvel glæsilegra..... get ekki beðið eftir að þið komið heim... það vantar svo mikið þegar þið eruð ekki hér

Luv

Agnes og litli frændi ( sem verður skírður 24. apríl)

Anonymous said...

Frábærar myndir og skemmtileg lesning. Fransmanna myndin er helv. góð. Sé að þið hafið það gríðarlega gott þarna úti. Frábært mál, en það er ekki laust við að það vanti talsvert stóran bita í skemmtanalífið hérna um helgar. Smá sakn. í gangi hérna. Kv. Ingi S.